Á fjölmennum fundi í vallarhúsi Gróttu var tekin ákvörðun um að Samfylkingin bjóði fram í samstarfi við Viðreisn og óflokksbundna Seltirninga undir merkjum Samfylkingar og óháðra í sveitarstjórnarkosningum í vor. Tekin var ákvörðun um að stillt yrði upp á lista og auglýsir Samfylkingin og óháðir eftir tilnefningum og framboðum Seltirninga sem vilja taka þátt í því verkefni að taka til í rekstri sveitarfélagsins, bæta þjónustu við íbúa og skipuleggja bæinn okkar með það í huga að auka lífsgæði.
Hægt er að senda inn tilnefningar og framboð á netfangið uppstilling@xseltjarnarnes.is til 1. febrúar 2026.
Í uppstillingarnefnd sitja:
– Guðmundur Ari Sigurjónsson
– Magnea Gylfadóttir
– Karl Pétur Jónsson
– Karen María Jónsdóttir
– Stefán Árni Gylfason
