Skipulagsmál eru ein af mikilvægustu málefnum sveitarfélaga. Það má í raun segja að aðalskipulag sveitarfélags sé uppskrift að samfélaginu enda er þar að finna helstu stefnumál málaflokka þess. Einn þeirra flokka er staða og þróun byggðar til framtíðar. Svo skrifar Helgi Steinn Helgason arkítekt í grein sem birt var í Nespóstinum þann 2. maí síðastliðinn undir fyrirsögninni „Skipulagsmál móta samfélag: aukum framboð minni íbúða“.
Helgi Steinn segir jafnframt í greininni að í samtölum sínum við íbúa bæjarins hafi ítrekað komið fram að ungt fólk sem og elstu kynslóðir eigi sér sameiginlegt áhyggjuefni, sem er að lítið sem ekkert framboð er á litlum íbúðum fyrir fyrstu kaupendur og þau sem vilja minnka við sig. Þessir stækkandi hópar sjái ekki fram á að geta búið áfram í sínu frábæra sveitarfélagi sem er miður, því hér liggja ræturnar, minningarnar, þekking og virðing fyrir samfélagi og umhverfi.
„Seltjarnarnes hefur þann kost að vera lítið sveitarfélag þar sem flestir þekkjast og þótt það sé vissulega ekki algilt þá er ríkt í okkur mannfólkinu að vilja helst ala upp okkar eigin börn þar sem við sjálf slitum barnskónum. Óhætt er að segja að landrými til frekari uppbyggingar á Seltjarnarnesi sé af skornum skammti og þess vegna er mikilvægt að nýta öll tækifæri sem skipulag hefur upp á að bjóða til að auka búsetuskilyrði og fjölbreytileika“.
„Segja má að Eiðistorgið sé hjarta bæjarins enda var það hannað og byggt sem verslunarkjarni með stórvörumörkuðum, litlum verslunar- og þjónusturýmum umhverfis yfirbyggt torg ásamt „loftíbúðum“ að erlendri fyrirmynd á efri hæðum. Á sínum tíma var þetta framsækin hugmynd sem heppnaðist vel þar sem fjölbreyttar og blómlegar verslanir þjónustuðu íbúa og fleiri til. Markaðir voru tíðir á torginu og hægt að njóta þeirra í öllum veðurskilyrðum“.
„Stórt og mikilvægt uppbyggingartækifæri liggur í því að útvíkka bæjarhjartað með nýjum og vel hönnuðum íbúðum – fyrir fyrstu kaupendur og þá sem eru að nálgast síðasta aldursskeiðið – þar sem nú er gríðarstórt bílastæði sem auðveldlega má staðsetja neðan jarðar. Það myndi óneitanlega glæða miðbæinn lífi að fá þessa tvo íbúahópa í hjarta bæjarins og brúa þannig kynslóðirnar, en aðskilnaður og einmanaleiki er orðið stórt lýðheilsuvandamál í samtímanum“.
„Á Bygggörðum, þar sem áður var úrsérgengið iðnaðarsvæði, er nú að rísa ný og vönduð byggð fjölbýlis-, rað- og einbýlishúsa með íbúðum af mismunandi stærðum og gerðum. Slíkt skipulag ýtir undir fjölbreytta íbúasamsetningu í námunda við náttúru og hennar gæði. Til þess að fullkomna þessa mikilvægu viðbót bæjarins er nauðsynlegt að teygja leiðarkerfi strætó þangað út eftir svo nýir íbúar hafi val um fjölbreyttan ferðamáta til samræmis við aðra íbúa sveitarfélagsins“.
„Í grónari hverfum bæjarfélagsins mætti uppfæra skipulagsskilmála fyrir stærri einbýlishús, til dæmis einbýlishúsa sem eru 300 fermetrar eða stærri. Gefa mætti leyfi til að skipta slíkum húsum upp í tvær eða þrjár minni íbúðaeiningar á aðskildum fasteignanúmerum. Þannig væri t.d. hægt að útfæra svokölluð kynslóðahús með löglegum hætti sem uppfylltu skilyrði reglugerða um öryggi og hollustuhætti nýrra híbýla“.
„Samfélagsmál og að skapa ramma um daglegt líf fólks í víðasta skilningi eru viðfangsefni arkitekta. Ég býð fram krafta mína, menntun og reynslu á sviði skipulags- og byggingarmála sem ég tel að geti nýst haganlega inn í faglega umræðu um farsæla þróun Seltjarnarness“.
