Nýir vindar á Seltjarnarnesi

Nýir vindar á Seltjarnarnesi

Seltjarnarnes er einstakt samfélag – lítið, samhent og skipað úrvalsfólki. Hér viljum við búa, ala upp börnin okkar og eldast í sátt við umhverfið. En til þess að bærinn okkar blómstri til framtíðar þurfum við skýra sýn og þor til að endurnýja okkur. Svo skrifar Sigurþóra Bergsdóttir í grein sem birt var í Nespóstinum þann 13. maí síðastliðinn.

Eftir átta ár í bæjarstjórn þekki ég innviði bæjarins okkar vel. Ég ber mikla virðingu fyrir samstarfsfólki mínu í báðum flokkum, við erum þarna af heilum hug og berum hag Nessins fyrir brjósti. Oft höfum við getað sameinast um góðar ákvarðanir, enda erum við sammála um mörg þeirra grunngilda sem gera Seltjarnarnes að frábærum stað.

Við komumst þó ekki hjá því að horfast í augu við raunveruleikann: Núverandi meirihluta hefur ekki tekist að fylgja málum eftir af þeirri festu sem rekstur bæjarfélags krefst. Við í minnihlutanum höfum margsinnis lagt fram raunhæfar tillögur, ekki síst við gerð fjárhagsáætlana, sem miða að því að styrkja innviði og þjónustu. Því miður hefur meirihlutinn virt þessar tillögur að vettugi og árangurinn er eftir því.

Mikilvæg verkefni hafa setið á hakanum árum saman. Við sjáum það glöggt á ókláruðum skólalóðum, hálfkláruðum endurbótum skóla og nýjum leikskóla sem hefur dregist úr hömlu að ljúka. Þetta snýst um staðnaða stjórnarhætti. Þegar sami flokkurinn stýrir bænum áratugum saman myndast kyrrstaða. Góður vilji dugar ekki lengur; það vantar ferskt sjónarhorn og nýja nálgun við stjórn bæjarins.

Samfylking, Viðreisn og óháðir mæta til leiks með nýja orku og skýrar áherslur:

  1. Ábyrg fjármál og öflug uppbygging: Við ætlum að stöðva skuldasöfnunina og laga fjármálin með fagmennsku að leiðarljósi. Við gerum það með því að styrkja tekjugrunninn, hagræða í rekstri og nýta fjármuni betur. Við munum skipuleggja miðbæinn og glæða Eiðistorg lífi. Með opnu bókhaldi og útboðum í öll verk tryggjum við að fjármunir íbúa skili sér sem best.
  2. Öruggt skólasamfélag og vellíðan barna: Menntun er okkar mikilvægasta fjárfesting. Við munum brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og ráðast í endurbætur á skólahúsnæði og gera skemmtileg leiksvæði. Við viljum auka vægi frístundastarfs barna og gera skóladaginn fjölskylduvænni, t.d. með því að seinka upphafi hans örlítið í Mýrahúsaskóla og bjóða upp á hafragraut á morgnana.
  3. Fyrirmyndarsamfélag í velferð og öryggi: Það á að vera gott að eldast á Nesinu. Við viljum styðja við gerð lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í samstarfi með þeim og tryggja fjölbreytt húsnæðisform svo fólk geti búið áfram í sínu heimabyggðarlagi. Við viljum samþætta heimaþjónustu með þarfir fólks í fyrirrúmi.

Samhliða munum við bæta samgöngur, svara kalli íbúa og stórauka umferðaröryggi í öllum hverfum.
Við viljum stórauka samráð við íbúa og hagaðila t.a.m. í gegnum foreldrafélögin þrjú og félag eldri borgara. Við erum í þessu saman og íbúar eiga að hafa raunverulegt aðgengi að ákvörðunartöku. Við viljum setja upp rafræna gátt til samskipta og búa til leið fyrir fólk að koma með góðar hugmyndir og stuðning til að framkvæma.

Seltjarnarnes þarf faglega forystu til að rjúfa kyrrstöðuna og móta nýja stefnu til framtíðar
Með því að velja Samfylkingu, Viðreisn og óháða veljum við kraft, fagmennsku og samfélag þar sem hagsmunir íbúa eru í fyrirrúmi.

Setjum x við S fyrir Seltjarnarnesið okkar.

Lesa má upprunalegu greinina í Nespóstinum með því að smella hér.