Öll börn!

Öll börn!

Ég hef notið þeirra forréttinda að fylgja stelpunum mínum og öðrum Gróttu stelpum á íþróttamót í gegnum tíðina. ,,Tekið dýnuna“ ófáu sinnum, varið nóttinni á misþykkri samlokudýnu í skólastofum víðsvegar um landið, einu sinni prófaði ég líka sænska skólastofu. Það er fátt skemmtilegra en að fylgjast með börnum blómstra í íþróttastarfi, skapa minningar með vinum sínum og vinkonum, takast á við áskoranir, sigra og tapa í öruggu umhverfi. Svo skrifar Kristín Edda Óskarsdóttir í grein sem birt var í Nespóstinum þann 13. maí síðastliðinn.

Það þurfa margar hendur að koma að skipulagi starfsins, allir leggjast á eitt. Íþróttastarfið myndi ekki vera það sem það er án sjálfboðaliða þeir eru ómissandi hluti af því ásamt öflugum þjálfurum sem starfa af miklum metnaði og hugsjón. En mér er oft hugsað til þeirra barna sem falla á milli í okkar litla samfélagi og njóta sín ekki í hefðbundnu íþróttastarfi.

Ég hef þá staðföstu trú að öll börn geti blómstrað. Það er okkar sem samfélag að grípa börn snemma og hjálpa þeim og fjölskyldum þeirra að finna sína fjöl og sinn hóp.

Í aðdraganda kosningabaráttunnar vildum við heyra frá fólkinu á gólfinu sem starfar með börnum og ungmennum alla daga. Við boðuðum því fundi með öllum sem koma að skipulagi og starfi með börnunum okkar og hagaðilum. Markmiðið var að taka stöðuna, heyra hvað þau höfðu að segja, komast að því hvar áskoranir liggja og tækifæri. Við hittum marga, allt frá forsvarsmönnum deildanna innan Gróttu, stjórnendum og þjálfara, stjórnendur leikskólanna, forsvarsmenn frístunda- og forvarnastarfsins og tónlistarskólans og foreldrafélögin í báðum skólunum og leikskólanum. Alls tólf fundir og fólki lá mikið á hjarta. Ég tel mig þekkja umhverfið vel, er stórnotandi á þjónustunni sem móðir þriggja barna á öllum þremur skólastigum og sjálfboðaliði í Gróttu, en ég var upprifin.

Það er gríðarlega mikill metnaður hjá þeim sem vinna með börnum hérna í samfélaginu og velferð barnanna skiptir þau máli. Forvarnargildi tómstundastarfs, hvort sem það eru íþróttir eða aðrar tómstundir, er ótvírætt. Mikilvægi þess að halda börnum og sérstaklega ungmennum í íþróttum og tómstundum er líka ótvírætt. Hlutverk Gróttu í samfélaginu er dýrmætt. Tölurnar tala sínu máli, nærri 40% barna á Seltjarnarnesi æfa handbolta og hjá deildinni starfa 42 þjálfarar af þeim eru 40 uppaldir í Gróttu. Þetta skiptir máli. Fimleikadeildin hefur snertiflöt við 700 börn, mörg úr Reykjavík, í hverri einustu viku. Það eru hátt í 330 börn að æfa fótbolta, í svona litlu sveitarfélagi. Þetta eru magnaðar tölur. Þetta er starf sem gerist ekki af sjálfu sér. Á bak við þessar tölur eru frábær mannauður.

En það var samhljómur með öllum þessum fundum. Fólk upplifði áhugaleysi af hálfu bæjaryfirvalda, skort á samtali og samráði, algjöran skort á viðhaldi og aðbúnaði var ábótavant, svo ekki sé tekið sterkara til orða. Eftir sat hjá mér þessi tilfinning um misræmi. Misræmi milli þess sem er haldið á lofti og hver staðan raunverulega er.

Viðunandi aðbúnaður til íþróttaiðkunar, heilnæmir skólar og skólalóðir sem ýta undir hreyfingu í útiveru. Þetta er eitthvað sem á að vera í lagi til að viðhalda gæðum í starfi og til að við fáum til okkar og höldum í frábært starfsfólk. Það þarf að taka á þessu af festu.

Í íþróttum og skipulögðu frístundastarfi styrkjast börn og eflast, reyna á sig í öruggu umhverfi, skapa minningar, finna sig og blómstra. En ég hef áhyggjur af börnum sem falla á milli stafs og hurðar. Þeim sem finna ekki sína fjöl í hefðbundnu íþróttastarfi og fara á mis. Það er þyngra en tárum taki að vita til þess.

Ég hef þá staðföstu trú að öll börn geti blómstrað. Og að það hvíli mikil ábyrgð á sveitarfélagi að grípa öll börn.

Félagsmiðstöðvar eru frábært dæmi um starf þar sem börn sem finna sig ekki í hefðbundnum íþróttum finna sig og sinn hóp. Félagsmiðstöðin Selið er í uppbyggingu núna eftir niðurskurð og húsnæðisvanda. Þar getum við gert enn betur, aukið opnunartíma og þar af leiðandi haft öflugra tómstundastarf fyrir öll börn. Eitt á ekki að útiloka annað. Við eigum að hafa öflugt og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf til að mæta ólíkum þörfum allra barna. Standa vörð um þetta mikilvæga starf. Hlusta á fólkið sem vinnur með börnunum þau eru best til þess fallinn að segja okkur hvar þörfin er. Gera fólki með þekkinguna og metnaðinn kleift að skapa umhverfi þar sem öll börn blómstra.

Það er margt svo frábært hérna á Seltjarnarnesi og við höfum skapað gott umhverfi fyrir börn til að alast upp í. En það er ekki sjálfsagt og það er viðkvæmt. Mannauðurinn er til staðar. Krafturinn og metnaðurinn er til staðar. Það sem vantar er forysta sem þorir að hugsa framsýnt, hlusta á fólkið sem kemur að starfinu og taka ákvarðanir með öll börn í forgrunni.

Öll börn geta blómstrað.

Lesa má upprunalegu greinina með því að smella hér.