Sterkara samfélag krefst nýrrar forystu

Sterkara samfélag krefst nýrrar forystu

Á Seltjarnarnesi er valið skýrt. Við getum haldið áfram á þeirri braut sem hefur fært okkur hallarekstur, frestun á viðhaldi, vannýtt tækifæri og kyrrstöðu. Eða við getum valið að treysta nýju fólki til verka, fólki sem hefur ekki setið að valdinu, en sem staðið hefur í baráttunni og sýnt að það skilur hvað þarf að gera.

Það sem aðgreinir okkur frá öðrum er að við erum ekki hluti af gamla valdakerfinu. Við höfum þess vegna þurft að fara víðar, horfa lengra, hlusta betur og tala skýrar. Við höfum þurft að sækja okkar mál af festu, í stað þess að treysta á vana eða sjálfgefna stöðu. Það mótar fólk. Það þroskar dómgreind. Það skapar forystu sem hægt er að treysta. 

Og þess vegna er tímabært að veita okkur umboðið til að taka við. Ekki vegna þess að við lofum fullkomnun. Heldur vegna þess að við lofum heiðarleika, aga og vinnusemi. Við lofum ekki einföldum svörum við flóknum vandamálum. Við lofum að horfast í augu við vandann, segja hlutina eins og þeir eru og vinna kerfisbundið að lausnum sem standast tímans tönn og próf raunveruleikans.

Sterkara samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það verður til þegar sveitarfélag hættir að fresta erfiðum ákvörðunum og fer að taka þær. Þegar fjármálin verða sjálfbær. Þegar innviðir eru verndaðir. Þegar skólar fá athygli. Þegar tómstundir eru styrktar. Þegar menning fær rými. Þegar velferð er sett í öndvegi. Sterkara samfélag er ekki slagorð heldur ábyrg stjórnun í verki.

Á Seltjarnarnesi blasir við að fjármálin þurfa nýja stefnu. Hallarekstur, skuldasöfnun og frestað viðhald eru ekki merki um festu. Þau eru merki um að forgangsröðunin hafi brugðist. Sveitarfélag sem lifir um efni fram er ekki að byggja upp framtíð. Það er að senda reikninginn áfram til íbúanna, barna þeirra og næstu kynslóða. Og það er ekki gott. Það er ekki rétt. Og það er ekki sú leið sem við eigum að sætta okkur við. 

Við þurfum líka að segja það upphátt: þegar sömu aðilar hafa setið lengi við völd getur vaninn orðið sterkari en framtíðarsýnin. Þá verður valdið sjálft markmiðið í stað þjónustu við íbúa. Nýtt fólk kemur með ný og fersk sjónarhorn, nýja nálgun. Við sjáum hvar ferlar hafa orðið sjálfum sér nægir, hvar hægt er að einfalda og hvar þarf að taka ákvörðun. Það er ekki galli. Það er kostur og það er nákvæmlega það sem sveitarfélag þarf sem vill breyta um stefnu.

Við viljum auka gagnsæi og aðhald. Íbúar eiga rétt á að vita hvernig sameiginlegum fjármunum er varið. Þeir eiga rétt á að sjá hvað er í forgangi, hvað hlutirnir kosta og hvaða árangri er verið að ná. Opin stjórnsýsla er ekki veikleiki. Hún er styrkur. Hún eykur aga, dregur úr sóun og styrkir traust. Og traust er ekki aukaafurð góðrar stjórnunar. Það er grunnurinn að henni.

Við viljum líka styrkja tekjugrunn bæjarins með skynsamlegri uppbyggingu. Seltjarnarnes á ekki að sætta sig við vannýtt tækifæri í miðbænum, skipulagi og atvinnulífi. Það er hægt að skapa meira líf, fleiri tækifæri og öflugri rekstur án þess að fórna því sem gerir bæinn að góðum stað til að búa á. En það krefst hugrekkis. Það krefst þess að þora að horfa fram á veginn.

Eiðistorg og miðbærinn eiga að vera hjarta bæjarins, ekki minnisvarði um stöðnun. Þar á að vera þjónusta, samvera og mannlíf. Staðarandinn á að endurspegla að bærinn ætli sér eitthvað annað og meira en bara það að halda hlutunum gangandi. Uppbygging sem skilar árangri er ekki snyrtilegt orðalag á pappír. Hún er raunveruleg breyting sem styrkir bæði fjárhag og samfélag.

Skólarnir eru annað dæmi. Skólastarfið á skilið heilnæmt húsnæði og umhverfi sem styður við nám, vellíðan og öryggi barna. Það er ekki hægt að biðja foreldra og starfsfólk um endalausa bið á meðan nauðsynlegar úrbætur dragast. Og það er heldur ekki hægt að láta samfélagið sjálft safna fyrir hlutum sem eiga að vera sjálfsögð grunnviðmið, eins og lífleg skólalóð. Við segjum: nú verður þetta gert. Nú verður þetta klárað. Nú verður sett fram tímasett framkvæmdar- og verkáætlun sem fylgt verður eftir af festu.

Tómstundir, listir og íþróttir eru ekki aukaatriði í sterku samfélagi. Þau eru burðarstoðir þess. Þar myndastast sjálfstraust. Þar myndast vinátta. Þar myndast færni og tilfinningin fyrir því að tilheyra. Við viljum að fjárhagur heimilisins ráði ekki því hvort barn fái að taka þátt. Við viljum að öll börn og ungmenni hafi raunverulegan aðgang að því sem byggir þau upp. Það er ekki kostnaður sem má skera burt. Það er fjárfesting í samfélaginu sjálfu. Forvörn til framtíðar.

Menningin skiptir einnig miklu máli. Hún er ekki skraut. Hún er sál bæjarins. Lifandi menning, virkt félagsheimili og sameiginlegir viðburðir skapa tengsl, bæjarbrag og mikilvæga samfélagsvitund. Þar lærum við að samfélag er ekki bara staður. Það er andrúm. Það er sameiginleg reynsla. Það er fortíð sem við höfum fengið í arf og framtíð sem við veljum saman. 

Velferð er svo mælikvarðinn á það hvort samfélagið standi með fólki þegar þarfir breytast. Gott bæjarfélag lætur fólk ekki týnast í flóknum kerfum. Það styður eldri borgara, fatlað fólk, börn með áskoranir og fjölskyldur þeirra með skýrri þjónustu, samhæfðum úrræðum og virðingu fyrir sjálfstæði hvers og eins. Þar þarf bæði hjarta og skipulag. Þar þarf þjónustu sem hallar sér fram og sér fólkið, ekki bara ferlana.

Og svo er það öryggið. Framsýni er besta vörnin gegn loftslagsvá með aukinni úrkomu, sjávarflóðum og álagi á innviði. Það þarf að huga að sjóvörnum, fráveitu og viðbragðsgetu með langtímahugsun. Forvarnir eru ekki lúxus. Þær eru skynsemi. Þær eru ábyrgð. Þær eru það sem skilur á milli bæjar sem bíður átektar og bæjar sem tekur af skarið. Verndar íbúa og verðmæti.

Við eigum því ekki að biðja um traust með tómum orðum. Við eigum að sýna af hverju við eigum það skilið. Við erum traustsins verð vegna þess að við höfum unnið fyrir því. Við erum framúrskarandi þegar kemur að því að hlusta, greina, standa með fólki og halda fókus á það sem skiptir máli. Við erum traustsins verð vegna þess að völdin hafa ekki skilgreint okkur eins og aðra. 

Nú er tíminn til að kjósa nýtt fólki til verka. Ekki vegna breytingarinnar sjálfrar, heldur vegna þess sem breytingin getur skapað: sterkara samfélag, skýrari stefnu og bæjarstjórn sem stendur með fólkinu.

Seltjarnarnes þarf nýja stjórn með þor, yfirsýn og trú á að hlutirnir geti orðið betri. Og þeir geta orðið mun betri.

Sjáumst á kjörstað,

Frambjóðendur Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra