Troðfullt var út úr dyrum þegar Samfylking, Viðreisn og óháðir opnuðu dyrnar að Félagsheimili Seltjarnarness í dag, en húsið hefur staðið autt, í fokheldisástandi í sex ár.
„Það hefur verið mjög sárt að horfa upp á þessa stöðu. Andvaraleysið gagnvart húsinu og starfseminni sem í því hefur verið, er algert. Húsið hefur verið sál bæjarins frá því það opnaði fyrst 1971“, er haft eftir Oddvita bæjarins Kristni Ólafssyni sem meðal annars steig sem ungur maður sinn fyrsta vangadans í balli í Félagsheimilinu.
Á viðburðinum í dag var boðið upp á kaffiveitingar, myndir frá fyrri tíð sýndar og minningar rifjaðar upp. Þá var farið yfir framtíðarmöguleika hússins og íbúum boðið að hengja sínar hugmyndir á hugmyndaborð.
Einnig var framinn var táknrænn gjörningur þegar bókstafurinn „A“ var settur á sinn stað í heiti Félagsheimilisins á skilti á framhlið hússins, en bókstafinn hefur vantað í heitið síðastliðin 4 árin. Kristinn Ólafsson oddviti, hengdi bókstafinn framan á skiltið á ný með aðstoð forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur og dómsmálaráðherra Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
Með gjörningnum var stigið fyrsta skrefið í þá átt að hefja Félagsheimilið á ný til vegs og virðingar.
Menning sem burðarás samfélagsins
Endurreisn Félagsheimilisins á Seltjarnarnesi er eitt af stefnumálum Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara í næstu helgi. Er það yfirlýst markmið að opna Félagsheimilið á ný og gera að miðstöð fyrir allar kynslóðir íbúa með lifandi tónlist, menningu og samfélagslegri nýsköpun.













