Ég hef búið á Seltjarnarnesi mest allt mitt líf. Hér ólst ég upp, hér ól ég upp börnin mín og nú fylgist ég með barnabörnunum ganga í gegnum skóla bæjarins. Seltjarnarnes er samfélag sem mér þykir vænt um og framtíð bæjarins okkar skiptir mig miklu máli. Svo skrifar oddvitinn Kristinn Ólafsson í grein sem birtist í Nespóstinum þann 13. maí síðastliðinn.
Seltjarnarnes hefur um langt skeið verið eftirsóknarverður staður að búa. Hér er sterkt og fjölskylduvænt samfélag, öflugt íþrótta- og félagsstarf og metnaður fyrir góðri þjónustu. Við eigum margt sem við getum verið stolt af. Á undanförnum árum höfum við þó séð merki um að eitthvað sé farið að gefa eftir. Viðhald hefur setið á hakanum og, innviðir látið á sjá. Það sem veldur mér einnig áhyggjum er skortur á fyrirsjáanleika í rekstri bæjarins. Bærinn hefur verið rekinn með um 400 milljóna króna halla að jafnaði síðustu tíu ár og uppsafnaður halli er orðinn hátt í fjórir milljarðar króna. Fjármagnsgjöld hafa aukist og nýr leikskóli verður að fullu fjármagnaður með lánsfé.
Þessi skortur á fagmennsku þegar kemur að fjármálastjórn bæjarins hefur dregið verulega úr fjárhagslegu svigrúmi bæjarins til að veita góða þjónustu, sinna viðhaldi og halda aftur af skuldsetningu. Þessu þurfum við að breyta. Það vantar skýrar langtímaáætlanir um viðhald, framkvæmdir og þjónustu. Þegar ekki er unnið með markvissri framtíðarsýn verða verkefni oftar að skyndilausnum sem bæði kosta meira og skapa óvissu fyrir íbúa. Fjármunir sem ættu að fara í uppbyggingu og framtíðarsýn enda í
ófyrirséðum viðgerðum og reddingum.
Við þurfum líka betra og virkara samtal við bæjarbúa. Í litlu samfélagi eins og okkar á upplýsingagjöf að vera skýr og aðgengileg og íbúar eiga að finna að á þá sé hlustað. Ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf fólks eiga ekki að koma á óvart heldur byggjast á trausti og samtali. Við teljum mikilvægt að stjórnun sveitarfélags byggi á skýrri framtíðarsýn, markvissri forgangsröðun og ábyrgum rekstri.
Kosningarnar þann 16. maí nk. snúast þó ekki einungis um fjármál heldur einnig í hvernig samfélagi við viljum búa. Við viljum búa í sveitarfélagi þar sem þjónustan er öflug, upplýsingagjöf skýr og íbúar finna að þeir séu virkir þátttakendur í samfélaginu. Jafnframt viljum við lífga upp á bæjarbraginn, styrkja mannlífið og skapa þannig enn betra samfélag fyrir fólk á öllum aldri.
Við sem stöndum að framboði Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra erum breiður hópur fólks með ólíka reynslu, bakgrunn og sýn sem gerir okkur vel í stakk búin að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni með það að markmiði að byggja upp sterkara samfélag til lengri tíma. Lykilverkefnið framundan er að ná stjórn á rekstri bæjarins til að skapa svigrúm til að efla þjónustu við börn og ungmenni og skapa öryggi fyrir eldri borgara. Með fagmennsku, festu og skýrri framtíðarsýn getum við klárað endurbætur á grunnskólunum okkar og tryggt gæðamenntun á öllum skólastigum. Við viljum geta boðið upp á öflugt íþrótta- og tómstundastarf þannig að öll börn á Seltjarnarnesi geti tekið virkan þátt í samfélaginu okkar og fengið tækifæri til að finna sig og ná árangri.
Mér er umhugað um framtíð Seltjarnarness. Ég trúi því að með nýrri sýn, ábyrgð og betra samtali við íbúa getum við byggt enn sterkara og skemmtilegra samfélag á Seltjarnarnesi. Nesið okkar á það skilið.
Lögum fjármálin – styrkjum samfélagið.
