Virkni og velferð

Félagsleg þjónusta

Velferðarþjónustan á Seltjarnarnesi gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja lífsgæði ólíkra hópa bæjarins. Seltjarnarnes er lítið samfélag þar sem við getum haldið utan um alla og boðið þéttriðið öryggisnet þar sem enginn lendir utangarðs. Samfylking og óháðir leggja áherslu á að velferðarþjónustan á Seltjarnarnesi miði að þörfum fólksins, en ekki kerfisins. Við viljum búa til eitt samfélag fyrir alla á Seltjarnarnesi. 

Samfylking og óháðir ætla að beita sér fyrir því að gera málsmeðferð þeirra er sækjast eftir aðstoð félagsþjónustunar faglegri með stofnun þjónustugáttar sem tryggir að allar umsóknir verði afgreiddar innan þess tímaramma er lög gera ráð fyrir. Tryggja þarf íbúum nauðsynlegar leiðbeiningar, ráðgjöf og aðstoð við umsókn og meðferð máls. Það er Samfylkingunni einnig hjartans mál að koma upp þverfaglegum hópi ráðgjafa á fjölskyldusviði svo hægt sé að nálgast hvert mál þverfaglega og taka heildrænt á félagslegum- og/eða persónulegum vanda einstaklingsins hvort sem hann snýr að fjárhagsaðstoð, húsnæðismálum, fjölskyldumálum, uppeldismálum eða sértækt að öldrun, fötlun eða öðru sambærilegu. Tryggja þarf að varðveisla gagna, trúnaður og þagnarskylda sé virt.

Lögð verður áhersla á forvarnir, einkum fyrir börn og ungt fólk. Samfylking og óháðir vilja koma á breiðara samstarfi skóla, heilbrigðis- og félagsþjónustu þar sem áhersla er á snemmtæka íhlutun.  Í því skyni viljum við koma á fót þverfaglegu stuðningsneti sem styður við einstaklinga í skóla, leik og starfi.  Við viljum tryggja samræmda þjónustu við börn og foreldra á einum stað og auðvelda bæði fagaðilum og fjölskyldum aðgengi að sérfræðingum og úrræðum. Slík þjónusta myndi einnig vinna inn í skólana og vera stuðningur og fræðsla fyrir kennara og starfsfólk skólans.  Markmiðið er að ekkert barn verði útundan á Seltjarnarnesi og allir fái að blómstra á eigin forsendum.  

Áhersla þarf að leggja á uppbyggingu félagslegs húsnæði á þessu kjörtímabili enda er það lögbundin skylda sveitarfélagsins að tryggja að nægt framboð sé af leiguhúsnæði handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samfylking og óháðir ætla að ráðast í uppbyggingu á miðbæjarsvæðinu og munum við eyrnamerkja hluta af þeirri íbúðauppbyggingu fyrir nýtt félagslegt húsnæði. Nú stendur yfir bygging á þjónustukjarna með sex íbúðum fyrir fatlað fólk en greiningar bæjarins á framtíðarþörfinni segja okkur að við þurfum að hefjast strax handa við að skipuleggja og undirbúa byggingu annars þjónustukjarna .

Samfylking og óháðir fagna því að notendastýrð persónuleg aðstoð, NPA, og fyrirkomulag þeirrar þjónustu hjá sveitarfélögum hafi nú verið lögfest með frumvarpi um þjónustu við fatlað fólk. Samfylking og óháðir vilja tryggja að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning til að getað notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Við viljum að fatlað fólk eigi kost á fyrsta flokks þjónustu til að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir þess.

Samfylking og óháðir vilja:

  • Byggja upp félagslegt húsnæði í nýjum öflugum miðbæ
  • Bæta málsmeðferð með þjónustugátt og þverfaglegri nálgun mála
  • Setja á fót þverfaglegt stuðningsnet fyrir einstaklinga í leik og starfi
  • Samræmda þjónustu við börn og foreldra á einum stað
  • Hefja undirbúning að byggingu á næsta íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk

Menningarlífið

Menningarstofnanir Seltjarnarness endurspegla sjálfsmynd bæjarins og þar með íbúa. Þær auðga líf bæjarbúa með því að opna fyrir gagnrýnið samtal um lífið og tilveruna. Samfylking og óháðir vilja styrkja Bókasafn Seltjarnarness enn frekar sem miðstöð menningar auk þess sem við viljum skoða ávinning þess að þróa hlutverk bókasafnsins í átt að samfélagsmiðstöð. Nútíma bókasöfn gegna lykilhlutverki þegar kemur að samfélagslegri þróun. Þau eru grunnur 

lýðræðis og framfara og lifandi starfsemi þeirra styðja við nýsköpun á sviði heilsu, menntunar, umhverfis, atvinnu, sem og tækni og miðlun. Einnig mætti hugsa sér að þarf væri staðsett borgaraþjónusta bæjarins.

Samfylking og óháðir vilja að Seltjarnarnesbær bjóði einstaklingum og hópum tækifæri til að örva andann og sköpunarkraftinn, hvort sem það er í gegnum samskipti við aðra, eða þátttöku í menningu og listum. Skapa þarf markvissa umgjörð utan um menningarstarf og listflutning á Seltjarnarnesi með skýru verklagi við úthlutun fjármagns til listastarfssemi. Einnig er mikilvægt að styðja við unga listamenn með styrkjum og aðstöðu til að stunda og setja upp list sína.

Samfylking og óháðir vilja:

  • Koma á skýru verklagi við úthlutun fjármagns til listastarfssemi
  • Treysta frekar hlutverk Bókasafns Seltjarnarness sem menningarmiðstöðvar og skilgreina nýtt hlutverk hennar sem samfélagsmiðstöðvar
  • Efla fjölmenningarstarf með áherslu á tungumál og félagsleg tengsl
  • Klára endurbætur á félagsheimilinu svo það nýtist félags- og menningarstarfi Seltirninga á öllum aldri.
is_ISIcelandic