Fréttir

Sterkara samfélag krefst nýrrar forystu

Sterkara samfélag krefst nýrrar forystu

Á Seltjarnarnesi er valið skýrt. Við getum haldið áfram á þeirri braut sem hefur fært okkur hallarekstur, frestun á viðhaldi, vannýtt tækifæri og kyrrstöðu. Eða við getum valið að treysta nýju fólki til verka, fólki sem hefur ekki setið að valdinu, en sem staðið hefur í baráttunni og sýnt að það skilur hvað þarf að gera. Það sem aðgreinir okkur frá öðrum er að við erum ekki hluti af gamla valdakerfinu. Við höfum þess vegna þurft að fara víðar, horfa lengra, hlusta betur og tala skýrar. Við höfum þurft að sækja okkar mál af festu, í stað þess að treysta…
Sjá meira
Our home, our vote, our future

Our home, our vote, our future

Four years ago, my husband David Kelley wrote an article titled My home, my vote, my future. In it, he described what it means to be a foreign resident in Seltjarnarnes. To live here, pay local taxes, use local services, raise a child, take part in the community, and have the right to a voice when the future of the town is decided. I have thought about that article often in the run-up to the municipal elections on May16th. It is easy to speak about community in broad terms. But a community is not built through policy documents alone. It…
Sjá meira
Nesið okkar

Nesið okkar

Ég hef búið á Seltjarnarnesi mest allt mitt líf. Hér ólst ég upp, hér ól ég upp börnin mín og nú fylgist ég með barnabörnunum ganga í gegnum skóla bæjarins. Seltjarnarnes er samfélag sem mér þykir vænt um og framtíð bæjarins okkar skiptir mig miklu máli. Svo skrifar oddvitinn Kristinn Ólafsson í grein sem birtist í Nespóstinum þann 13. maí síðastliðinn. Seltjarnarnes hefur um langt skeið verið eftirsóknarverður staður að búa. Hér er sterkt og fjölskylduvænt samfélag, öflugt íþrótta- og félagsstarf og metnaður fyrir góðri þjónustu. Við eigum margt sem við getum verið stolt af. Á undanförnum árum höfum við…
Sjá meira
Öll börn!

Öll börn!

Ég hef notið þeirra forréttinda að fylgja stelpunum mínum og öðrum Gróttu stelpum á íþróttamót í gegnum tíðina. ,,Tekið dýnuna“ ófáu sinnum, varið nóttinni á misþykkri samlokudýnu í skólastofum víðsvegar um landið, einu sinni prófaði ég líka sænska skólastofu. Það er fátt skemmtilegra en að fylgjast með börnum blómstra í íþróttastarfi, skapa minningar með vinum sínum og vinkonum, takast á við áskoranir, sigra og tapa í öruggu umhverfi. Svo skrifar Kristín Edda Óskarsdóttir í grein sem birt var í Nespóstinum þann 13. maí síðastliðinn. Það þurfa margar hendur að koma að skipulagi starfsins, allir leggjast á eitt. Íþróttastarfið myndi ekki…
Sjá meira
Menning er undir­staða öflugs sam­fé­lags

Menning er undir­staða öflugs sam­fé­lags

Það skiptir máli hvernig það er að búa í sínum bæ. Sveitarfélag er ekki aðeins metið út frá leikskólaplássum, gatnakerfi og skipulagsmálum, heldur líka út frá því hvort þar sé líf, samvera og tilfinning fyrir samfélagi. Bæjarbragur verður ekki til af sjálfu sér. Hann verður til þegar fólk hefur staði til að hittast, vettvang til að skapa og tilefni til að taka þátt. Svo skrifar Karen María Jónsdóttir í skoðanagrein sem birt var á Visir.is þann 13. maí síðastliðinn. Við viljum gera Seltjarnarnes að hvetjandi menningarsamfélagi með sterka sjálfsmynd og lifandi bæjarbrag. Þótt höfuðborgin sé í næsta nágrenni og þar…
Sjá meira
Nýir vindar á Seltjarnarnesi

Nýir vindar á Seltjarnarnesi

Seltjarnarnes er einstakt samfélag – lítið, samhent og skipað úrvalsfólki. Hér viljum við búa, ala upp börnin okkar og eldast í sátt við umhverfið. En til þess að bærinn okkar blómstri til framtíðar þurfum við skýra sýn og þor til að endurnýja okkur. Svo skrifar Sigurþóra Bergsdóttir í grein sem birt var í Nespóstinum þann 13. maí síðastliðinn. Eftir átta ár í bæjarstjórn þekki ég innviði bæjarins okkar vel. Ég ber mikla virðingu fyrir samstarfsfólki mínu í báðum flokkum, við erum þarna af heilum hug og berum hag Nessins fyrir brjósti. Oft höfum við getað sameinast um góðar ákvarðanir, enda…
Sjá meira
Tóm­stundir mega ekki vera for­réttindi á Sel­tjarnar­nesi

Tóm­stundir mega ekki vera for­réttindi á Sel­tjarnar­nesi

Íþróttir, listir og tómstundir eru ekki aukaatriði í lífi barna heldur ein sterkasta forvörn sem samfélagið á. Á Seltjarnarnesi viljum við tryggja öllum börnum raunveruleg tækifæri til þátttöku, óháð efnahag foreldra, og byggja upp samfélag þar sem enginn er skilinn eftir. Svo segir Kristín Edda Óskarsdóttir í skoðanagrein sem birt var á Visir.is þann 10. maí síðastliðinn. Það segir margt um sveitarfélag hvernig það mætir börnum sínum. Ekki bara í skólastofunni heldur líka eftir að skóladegi lýkur. Það er í íþróttahúsinu, í félagsmiðstöðinni, á sviðinu, á dansgólfinu, á æfingasvæðinu og í sumarstarfinu þar sem sjálfstraust barna og ungmenna byggist upp,…
Sjá meira
Skattasjónhverfingin á Seltjarnarnesi

Skattasjónhverfingin á Seltjarnarnesi

Þegar rætt er um fasteignagjöld á Seltjarnarnesi er gjarnan byrjað á fasteignaskattinum sjálfum. Bent er á að fasteignaskatturinn hér sé lægri en í Reykjavík og þannig er því haldið fram að Nesið sé hófsamt skattasveitarfélag. En íbúar borga ekki bara fasteignaskatt. Reikningur sem þeir fá sendan í heimabankann í hverjum mánuði er fyrir fasteignagjöldum og fasteignaskatturinn er aðeins hluti af þeim gjöldum. Svo skrifar Karen María Jónsdóttir í aðsendri grein sem birt var á vef Nespóstsins þann 13. maí síðastliðinn. Þegar fasteignamat hækkar er yfirleitt talað um álagningarprósentuna. Hún hljómar tæknileg, saklaus og jafnvel huggandi ef hún lækkar. Þannig hefur umræðan…
Sjá meira
Framsýni er besta vörnin fyrir Seltjarnarnes

Framsýni er besta vörnin fyrir Seltjarnarnes

Loftslagsbreytingar eru nú þegar farnar að hafa áhrif á Seltjarnarnes. Nú þarf sveitarstjórn sem þorir að horfast í augu við stöðuna, grípa til forvarna og verja íbúa, eignir og innviði með markvissum aðgerðum. Svo skrifar Garðar Gíslason í skoðanagrein sem birt var á Visir.is þann 11. maí síðastliðinn. Loftslagsbreytingar eru ekki lengur eitthvað sem gerist einhvern tímann í framtíðinni. Við sjáum áhrif þeirra nú þegar í aukinni úrkomu, meiri úrkomuákefð, hækkandi sjávarstöðu og auknu álagi á innviði sem voru ekki hannaðir fyrir þær aðstæður sem nú blasa við. Á Seltjarnarnesi er þessi staða sérstaklega viðkvæm vegna láglendis og nálægðar við…
Sjá meira
Skóla­mál á Sel­tjarnar­nesi í fyrsta sæti

Skóla­mál á Sel­tjarnar­nesi í fyrsta sæti

Á Seltjarnarnesi á skólasamfélagið að vera öruggt, framsækið og manneskjulegt. Það krefst heilnæms húsnæðis, skýrrar sýnar, snemmtæks stuðnings og sveitarfélags sem setur hagsmuni barna ofar bið, vanhaldi og síhækkandi álögum á fjölskyldur.Svo skrifar Áslaug Eva Björnsdóttir í skoðanagrein sem birt var á Visir.is þann 12. maí. Það er ekkert verkefni mikilvægara en að tryggja börnum öryggi, menntun og aðstæður til að vaxa og dafna. Þar ræðst ekki aðeins líðan barna í núinu heldur líka framtíð samfélagsins. Þess vegna skiptir máli að tala skýrt: skólamál eru ekki málaflokkur sem má reka á hálfum afköstum, með sífelldum töfum, óvissu og viðbragðsstjórnun. Heilnæmt…
Sjá meira