Uppbygging sem skilar árangri

Sjálfbær rekstur Seltjarnarnesbæjar til framtíðar byggir á því að nýta tækifærin í umhverfi okkar til að styrkja tekjustofna og draga úr skuldsetningu. Við viljum skapa líflegt og aðlaðandi bæjarfélag þar sem skynsamlegt skipulag og fjölbreytt mannlíf haldast í hendur við sterka grunnþjónustu. Með því að þróa miðbæjarsvæðið og fjölga íbúum í sátt við samfélagið, bætum við rekstur og aukum vellíðan allra Seltirninga.

Samhliða vexti bæjarins er lykilatriði að efla samgöngur og tryggja öruggt flæði umferðar til og frá Nesinu. Við ætlum að nýta stöðu okkar sem stofnaðilar að Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að virkja vinnu við vannýtt tækifæri og bæta tengingar fyrir alla ferðamáta. Markmið okkar er uppbygging sem skilar raunverulegum árangri fyrir íbúa og atvinnulíf.

Stuðlum að árangursríkri uppbyggingu.

  • Mótum heildstæða framtíðarsýn um Eiðistorg og miðbæinn þar sem skipulögð er blönduð byggð á lóðum bæjarins við Austurströnd og Eiðistorg í góðu samstarfi við íbúa og hagaðila.
  • Endurreisum Eiðistorg sem lifandi hjarta bæjarins með því að ljúka viðgerðum á þaki torgsins, bætum hljóðvist og sköpum aðlaðandi stemningu í samstarfi við einkaaðila á svæðinu.
  • Þróum nútímalegan lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara þar sem áhersla er lögð á fjölbreytt búsetuform sem mætir þörfum fólks á mismunandi æviskeiðum.
  • Bætum umferðaröryggi í öllum hverfum bæjarins með því að grípa til markvissra aðgerða með öryggi vegfarenda í fyrirrúmi, svo sem með takmörkun á hraða. 
  • Eflum almenningssamgöngur og bætum tengingar, stofnleiðir Strætó þjóni Gróttubyggð og tengist betur öflugri starfsemi á Granda.
  • Ljúkum gerð öruggra hjólastíga við Nesveg og sköpum góða tengingu bæjarins við háskólasvæðið í Vatnsmýrinni og aðra lykilstaði á höfuðborgarsvæðinu.
  • Bætum aðgengi og stýringu við Gróttu með því að skipuleggja bílastæði og hefja gjaldtöku þar sem Seltirningar eru sérstaklega undanskildir.
  • Styrkjum innviði til útivistar við Náttúruminjasafnið með gerð vandaðrar uppbyggingaráætlunar fyrir gönguleiðir með stuðningi úr opinberum framkvæmdasjóðum.
  • Forgangsröðum Miklubrautargöngum til að tryggja greiðari samgöngur fyrir íbúa Seltjarnarness og bæta tengingar við aðra hluta höfuðborgarsvæðisins.

Tryggjum markvisst viðhald á vegakerfi bæjarins með því að leggja fram og fylgja eftir skýrri áætlun um endurbætur á götum og stofnbrautum á og að Nesinu.