Íþrótta- og tómstundastarf er hjartað í uppvexti barna á Seltjarnarnesi, þar sem sjálfstraust og félagsleg tengsl verða til. Við ætlum að tryggja öllum jöfn tækifæri til þátttöku með því að efla samstarf við íþróttafélög og listaskóla, samhæfa sumarstarf og verja mikilvæga forvarnarstarfsemi. Með fyrirsjáanleika í fjármögnun og bættri aðstöðu sköpum við hvetjandi umhverfi þar sem öll börn geta blómstrað á sínum forsendum.
Markmið okkar er að fá heildarmynd á útgjöldum bæjarins þegar kemur að rekstri íþróttafélaga og mannvirkja. Við leggjum áherslu á að rjúfa einangrun og efla geðheilbrigði með því að styrkja félagsmiðstöðina. Seltjarnarnes á að vera fyrirmyndarsamfélag þar sem íþróttir, listir og tómstundir eru aðgengilegar öllum og fjárhagur foreldra stendur ekki í vegi fyrir virkni barna.
Öflugt og íþrótta-, lista- og tómstundastarf fyrir alla.
- Hækkum frístundastyrk í takt við verðlagsþróun svo hann haldi verðgildi sínu og létti raunverulega undir með barnafjölskyldum á Nesinu.
- Eflum starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Selsins og ungmennahússins með bættri aðstöðu, öflugu fagstarfi og lengri opnunartíma. Tryggjum öllum ungmennum öruggt og hvetjandi athvarf.
- Samhæfum allt sumarstarf bæjarins með heildstæðum hætti í samvinnu við íþróttafélög, listaskóla, stofnanir bæjarins og aðra hagaðila með skýru þaki á þátttökukostnað fyrir fjölskyldur.
- Aukum fjölbreytni í framboði námskeiða fyrir 10–12 ára börn til að brúa bilið milli barna- og unglingastarfs og mætum þörfum þessa aldurshóps í Selinu.
- Viðhöldum kvöldopnun í Sundlaug Seltjarnarness svo íbúar geti nýtt heilsueflandi þjónustu lengur.
- Festum í sessi sérstakan tómstundastyrk fyrir börn af efnaminni heimilum til að jafna tækifæri og tryggja að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu starfi óháð efnahag.
- Eflum samstarf við sjálfstætt starfandi listaskóla þannig að vandað nám í dansi og leiklist geti áfram vaxið og dafnað.
- Gerum langtímaáætlun um viðhald og uppbyggingu íþróttamannvirkja í samstarfi við íþróttafélögin með fyrirsjáanleika og örugga aðstöðu að leiðarljósi.
- Uppfærum samninga við íþróttafélögin með hliðsjón af kröfum um sjálfbæran rekstur og öflugt barna- og unglingastarf í allri starfsemi.
- Virkjum unga fólkið til þátttöku í stefnumótun og ákvörðunartöku með reglulegum fundum bæjarstjórnar með nemendaráði og ungmennaráði bæjarins.
