Seltjarnarnes á að vera fyrirmyndarsveitarfélag þar sem íbúar á öllum aldri lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi í öruggu umhverfi. Við forgangsröðum samþættri þjónustu og fjölbreyttum húsnæðisformum svo fólk geti búið sem lengst á eigin heimili og „minnkað við sig“ innan Seltjarnarness þegar þarfir breytast. Rjúfum einangrun og tryggjum að þjónusta sé ávallt veitt á forsendum einstaklingsins.
Við ætlum að ráðast í aðgerðir sem snúa að heilbrigðri öldrun. Við viljum einfalda aðgengi að ráðgjöf og upplýsingum um réttindi eldri borgara og aðstandenda þeirra og úrræði og bjargir sem þeim standa til boða. Hér á að vera gott að eldast, það á að vera keppikefli að búa eldri borgurum góðar aðstæður í lífi og leik með þeim hætti að það létti álagi af aðstandendum.
Markmið okkar er að brjóta niður múra milli kerfa og tryggja heildstæða og tafarlausa þjónustu sem eykur lífsgæði allra íbúa. Með því að nýta tæknilausnir og efla félagslegt starf búum við til samfélag þar sem vellíðan og öryggi eru í fyrirrúmi á öllum lífsskeiðum.
Byggjum upp fyrirmyndarsamfélag í velferðarmálum.
- Samþættum heimaþjónustu og heimahjúkrun með ríkri áherslu á endurhæfingu svo íbúar búi við öryggi og sjálfstæði á eigin heimili sem lengst.
- Nýtum tæknilausnir og fjarlausnir til að auka sjálfstæði íbúa og tryggja skjótari viðbrögð og bætta þjónustu.
- Tryggjum íbúðir fyrir eldri borgara í allri nýbyggingu þannig að auðveldara sé að skipta um húsnæði og búa áfram á Nesinu.
- Sköpum lífsgæðakjarna á Seltjarnarnesi í samstarfi við Félag eldri borgara sem verður lifandi miðpunktur fyrir heilsueflingu og samfélagslega virkni.
- Vinnum markvissa áætlun um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk þar sem þjónusta og búseta mæta ólíkum þörfum hvers og eins af virðingu.
- Eflum hlutverk forvarnarfulltrúa og tengjum saman ólíka málaflokka. Bætum geðheilbrigði og hvetjum til aukinnar hreyfingar hjá öllum aldurshópum.
- Brjótum niður múra milli sveitarfélagsins og ríkisins svo íbúar fái heildstæða þjónustu án óþarfa flækju og tafa.
