Menntun og vellíðan barna er mikilvægasta fjárfesting Seltjarnarness. Skólarnir okkar eiga að vera í fremstu röð, státa af framúrskarandi fagfólki og fyrirmyndaraðstöðu sem skapar grunn að vexti og öryggi hvers barns. Heilnæmt starfsumhverfi sem íbúar og starfsfólk bæjarins geta treyst, fæst með því að forgangsraða viðhaldi og fylgja eftir skýrri framkvæmdaáætlun gegn myglu og vanhaldi. Við leggjum áherslu á snemmtæka íhlutun og öfluga lágþröskuldaþjónustu, svo stuðningur við börn og foreldra berist hratt og örugglega þegar hans er þörf. Brúum bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, gætum hófs í gjaldtöku og léttum þannig álagi af barnafjölskyldum.
Byggjum upp öruggt og framsækið skólaumhverfi.
- Brúum bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með kerfisbundinni inntöku barna í leikskóla tvisvar á ári, í september og janúar.
- Flýtum endurbótum á skólalóðum í virku samráði við nemendur, starfsfólk og foreldra.
- Ráðumst í heildstæðar endurbætur á skólahúsnæði með tímasettri og birtri framkvæmdaáætlun svo unnt sé að tryggja heilnæmt og öruggt umhverfi fyrir börn og starfsfólk.
- Aukum umferðaröryggi barna, bætum leiðir þeirra til og frá skóla og tryggjum öryggi. Drögum úr umferðarhraða við leiðir til og frá skólum.
- Bætum aðgengi að ráðgjöf og stuðningi með beinum boðleiðum til fagaðila sem stytta viðbragðstíma og efla farsæld barna og ungmenna.
- Ljúkum byggingu leikskóla og mótum framtíðarsýn fyrir uppbyggingu og starfsemi Mánabrekku og Sólbrekku til að mæta þörfum framtíðar.
- Stuðningur fylgi börnum í tómstundastarf svo öll börn fái jöfn tækifæri til að nýta hæfileika sína og sinna áhugamálum.
- Eflum samstarf skóla og íþróttafélaga á Nesinu og samþættum þjónustu.
- Styðjum við starfsþróun kennara og fagfólks svo að Seltjarnarnes sé ávallt í fremstu röð þegar kemur að faglegu skólastarfi.
- Tryggjum rétt barna til vandaðrar sérkennslu og að sérhver nemandi fái nauðsynlegan stuðning og viðeigandi úrræði á sínum eigin forsendum.
- Leggjum mat á nýtt leikskólamódel með árangur að leiðarljósi, þar sem hagsmunir barna, foreldra og starfsfólks eru settir í forgang.
- Seinkum upphafi skóladags um 20 mínútur og endurvekjum morgunstund með hafragraut fyrir nemendur og foreldra, það minnkar streitu og stuðlar að rólegri skólabyrjun fyrir alla.
