Seltjarnarnes í tölum
Samfylking, Viðreisn og óháðir hafa sett í loftið gagnvirkt mælaborð fyrir íbúa svo þeir geti glöggvað sig með einföldum hætti á rekstri bæjarins. Þar má skoða þróun tekna, gjalda, skulda og sjóðsstreymis og hægt er að leika sér með stikur, bora sig niður í fjárhagsgögnin og bera saman. Er þetta í fyrsta sinn sem fjárhagsgögn bæjarins eru gerð aðgengileg með þessum hætti. Gögn í mælaborðinu byggja á útgefnum fjárhagsáætlunum og ársreikningum Setljarnarnesbæjar og ná gögnin yfir tímabilið 2016-2025. Þá byggja skilgreiningar, hugtök og viðmið einnig á reglugerð nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaganna sem og birtum…









