Uppstilling hjá Samfylkingu og óháðum
Á fjölmennum fundi í vallarhúsi Gróttu var tekin ákvörðun um að Samfylkingin bjóði fram í samstarfi við Viðreisn og óflokksbundna Seltirninga undir merkjum Samfylkingar og óháðra í sveitarstjórnarkosningum í vor. Tekin var ákvörðun um að stillt yrði upp á lista og auglýsir Samfylkingin og óháðir eftir tilnefningum og framboðum Seltirninga sem vilja taka þátt í því verkefni að taka til í rekstri sveitarfélagsins, bæta þjónustu við íbúa og skipuleggja bæinn okkar með það í huga að auka lífsgæði. Hægt er að senda inn tilnefningar og framboð á netfangið uppstilling@xseltjarnarnes.is til 1. febrúar 2026. Í uppstillingarnefnd sitja:- Guðmundur Ari Sigurjónsson- Magnea…






