Ábyrg fjármálastjórn er undirstaða sterks samfélags og betri þjónustu við íbúa á Seltjarnarnesi. Eitt mikilvægasta verkefni okkar er að tryggja að fjármunum bæjarins sé varið af framsýni og festu svo unnt sé að bjóða upp á öfluga innviði og betri lífsgæði til framtíðar. Grundvöllur þessa er samþætt nálgun þar sem fjárhagslegur stöðugleiki og fagleg stjórnun mætast til að stuðla að bæjarfélagsins.
Það blasir við að mæta þarf áskorunum vegna uppsafnaðs halla og vaxandi skuldsetningar síðasta áratugar. Skuldasöfnun bæjarins hefur dregið verulega úr getu til viðhalds og þróunar. Við ætlum að tryggja að reksturinn verði í jafnvægi með því að styrkja tekjugrunninn og hagræða án þess að skerða grunnþjónustu. Jafnframt þurfa öll innkaup og stór verkefni að vera unnin á forsendum fagmennsku og útboða til að hámarka nýtingu fjármuna og verja sameiginlegar eignir okkar til lengri tíma.
Við ætlum að laga fjármálin og styrkja samfélagið.
- Hagræðum í rekstri bæjarins og verjum grunnþjónustu svo íbúar njóti áfram hágæða þjónustu þrátt fyrir auknar kröfur um hagkvæmni í stjórnsýslu.
- Aukum gagnsæi og aðhald með reglulegri upplýsingagjöf og opnu bókhaldi svo íbúar hafi skýra innsýn í hvernig sameiginlegum fjármunum er ráðstafað.
- Styrkjum tekjugrunn bæjarins til framtíðar með markvissri þróun á miðbæjarsvæðinu og fjölgum fyrirtækjum sem sjá hag sinn í að starfa á Nesinu.
- Sinnum viðhaldi eigna bæjarins jafnt og þétt til að verja verðmæti og komum í veg fyrir dýrt viðhald.
- Sækjum nýjar tekjur af ferðafólki á Seltjarnarnesi með því að bæta aðstöðu og stýringu við Gróttu.
- Leggjum fram raunhæfar fjárhagsáætlanir, tekjur þurfa að standa undir útgjöldum. Tryggjum að ákvarðanir dagsins í dag, íþyngi ekki komandi kynslóðum.
- Drögum markvisst úr skuldsetningu bæjarsjóðs. Þannig lækkum við vaxtakostnað og sköpum svigrúm fyrir nauðsynlegar innviðafjárfestingar.
- Stýrum eignasafni bæjarins með faglegum hætti til að hámarka virði fasteigna og lausafjár. Tryggjum að allar eignir nýtist samfélaginu með sem bestum hætti.
- Aukum innkaupamátt bæjarins með gagnsæjum útboðum og tryggjum að stórar framkvæmdir fari ávallt í opið útboðsferli þar sem gæði og hagkvæmni ráða för.
