Sjóvarnir og öryggi

Hækkandi sjávarstaða og breytt veðurfar kalla á nýja nálgun þar sem forvarnir og framsýni í skipulagi eru í fyrirrúmi. Við ætlum að miða hönnun innviða og stjórnsýslu bæjarins við 50 ára framtíðarspár. Markmið okkar er að vernda líf, eignir og innviði með markvissri áhættustýringu og nánu samstarfi við sérfræðinga.

Með því að endurnýja fráveitukerfið og styrkja sjóvarnir á berskjölduðum svæðum lágmörkum við hættu á tjóni og mengun. Nýtum nútímatækni til vöktunar í rauntíma og tryggjum að flóttaleiðir og vegtengingar séu ávallt öruggar í samstarfi við nágranna okkar. Seltjarnarnes á að vera öruggt skjól þar sem búið er í sátt við náttúruöflin.

Tryggjum sjóvarnir og öryggi sveitarfélagsins.

  • Framkvæmum heildstætt áhættumat, kortleggjum flóðasvæði og leggjum fram áætlun um aðlögunaraðgerðir í samvinnu við íbúa og hagaðila.
  • Lagfærum og endurnýjum fráveitukerfi bæjarins með áherslu á aðskilnað ofanvatns og skólps til að koma í veg fyrir skemmdir og mengun við aftakaúrkomu.
  • Styrkjum sjóvarnir fyrir tómstunda- og útivistarsvæði þannig að þau verði varin fyrir vaxandi náttúruvá og sjávarflóðum.
  • Stóreflum sjóvarnir fyrir berskjaldaða byggð með sérstakri áherslu á Suðurströnd og önnur skilgreind hættusvæði þar sem eignir íbúa liggja nærri fjöruborði.
  • Byggjum upp getu til vöktunar innviða og öflugs viðbragðs með því að fjárfesta í mælitækjum sem vaka yfir sjávarhæð og stöðu fráveitu í rauntíma.
  • Samhæfum aðgerðir með nágrannasveitarfélagi okkar vegna flóttaleiða svo tryggt sé að vegtengingar rofni ekki þegar á reynir.